
27. jan. 2012
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2012-2013. Einungis er hægt að sækja um rafrænt til og með 29. febrúar 2012 á ki.is, Mínar síður. Öll fylgiskjöl þurfa að fylgja með ræfrænni umsókn þar sem ekki er tekið við gögnum eftir á.
Lesa meira18. jan. 2012
Vakin er athygli á auglýsingu mennta- og menningarmálaráðuneytisins eftir umsóknum úr Sprotasjóði. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýungar í starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Lesa meira10. jan. 2012
Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2012-2013 er til og með 20. febrúar 2012.
Lesa meira10. jan. 2012
3f, félag um upplýsingatækni og menntun, heldur námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í Verzlunarskóla Íslands mánudaginn 23. janúar og þriðjudaginn 24. janúar kl. 16:00-20:00 báða dagana.
Lesa meira4. jan. 2012
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði til endurleigu sumarið 2012 fyrir félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og sumarhús koma til greina. Húsnæðið þarf að vera vel búið húsgögnum og uppfylla kröfur um góðan húsbúnað. Leigusali þarf að hafa reglulegt eftirlit með húsnæðinu. Fastur leigutími eru 8 vikur á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 2012.
Lesa meiraLesa allar fréttir